UEFA hefur ákært Roma eftir að hluti stuðningsmanna liðsins gáfu frá sér apahljóð í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni.
Hljóðunum var beint að þýska landsliðsmanninum Antonio Rudiger, varnarmanni Chelsea. Hann gekk í raðir Chelsea frá Roma í sumar.
Hljóðunum var beint að þýska landsliðsmanninum Antonio Rudiger, varnarmanni Chelsea. Hann gekk í raðir Chelsea frá Roma í sumar.
Rudiger kom inn sem varamaður í seinni hálfleik í 3-3 jafntefli á miðvikudaginn.
Aganefnd UEFA mun taka málið fyrir 16. nóvember.
Þá er líklegt að UEFA muni gefa Everton refsingu eftir að allt sauð upp úr milli leikmanna við hliðarlínuna í leik Everton og Lyon. Stuðningsmaður Everton, sem hélt á barni, ýtti við leikmanni Lyon í látunum.
Everton hefur tilkynnt að stuðningsmaðurinn verði bannaður frá leikjum liðsins.
Athugasemdir