Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 20. október 2017 20:44
Brynjar Ingi Erluson
Róbert Haraldsson hættir með Grindavík (Staðfest)
Róbert Haraldsson á hliðarlínunni
Róbert Haraldsson á hliðarlínunni
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Knattspyrnudeild Grindavíkur sendi í kvöld frá sér yfirlýsingu en Róbert Haraldsson er hættur með kvennalið félagsins.

Grindavík komst upp í Pepsi-deild kvenna fyrir síðasta tímabil og tók Róbert í kjölfarið við liðinu.

Grindavík hafnaði í 7. sæti Pepsi-deildar kvenna og spilar því áfram þar en Róbert verður þó ekki með liðið.

Hann hefur ákveðið að halda ekki áfram með liðið en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.

Róbert hefur áður þjálfað Tindastól, KF og Hvöt auk þess sem hann stýrði Fjarðabyggð og kvennalið KVA.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner