Barcelona styrkti stöðu sína á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld með 2-0 sigri á Malaga.
Þeir komust yfir snemma leiks, þá sendi Lucas Digne boltann fyrir fætur Gerard Deulofeu sem kom boltanum í markið.
Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan þá var boltinn kominn vel út fyrir völlinn þegar Lucas Digne sendi hann fyrir markið.
Leikmenn Malaga voru skiljanlega alls ekki sáttir með þessa ákvörðun dómarans, en það gengur lítið upp hjá þeim þessa dagana því þeir eru staddir í neðsta sæti deildarinnar með aðeins eitt stig.
Barcelona go 1-up early on v Malaga thanks to a cross that was clearly out of play.
-- 101 Great Goals (@101greatgoals) October 21, 2017
Lucas Digne to Gerard Deulofeu...
? pic.twitter.com/nbbc27HE4Y
Athugasemdir