Sofiane Boufal leikmaður Southampton skoraði frábært mark í 1-0 sigri þeirra á West Brom í síðdegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í gær.
Það er spurning hvort að hann hafi náð að tryggja sér byrjunarliðssæti með þessu marki en hann byrjaði á bekknum í leiknum í gær.
„Fyrsta markið mitt í úrvalsdeildinni á tímabilinu, já, það var mjög sérstakt en það mikilvægasta er að við tókum stigin þrjú, það er mikilvægara en markið mitt," sagði Boufal.
Hann segist hafa skorað mark svipað markinu í gær þegar hann lék í Frakklandi en segist engu að síður mjög ánægður með þetta mark.
„Það allra mikilvægasta er að sýna stjóranum það inn á vellinum að ég sé nóg og góður til að spila fyrir þetta lið," sagði Boufal að lokum.
Athugasemdir