„Mér líður mjög vel í Tékklandi. Við erum búnar að hvíla okkur vel og undirbúa okkur eins vel og mögulegt er. Við erum búnar að kynna okkur aðeins Tékkana og finnst við vera tilbúnar í þennan leik.,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir í samtali við Fótbolta.net fyrr í dag. Gugga var á leið á síðustu æfingu Íslands fyrir leikinn mikilvæga gegn Tékklandi á morgun.
Gugga er elsti leikmaður Íslands, fædd í maí 1985, og sú eina í núverandi landsliðshópi sem hefur tekið þátt í A-landsleik gegn Tékklandi. Það var árið 2006 þegar Tékkar unnu Ísland 4-2 á Laugardalsvelli. Gugga var þá 19 ára og sat á bekknum á meðan Þóra Björg Helgadóttir stóð í markinu. Aðspurð um þann leik sagðist Gugga ekki muna eftir honum.
„Ef ég á að vera hreinskilin þá man ég ekkert eftir því. Hvernig fór sá leikur?“ spurði Gugga á móti.
„4-2 fyrir Tékkum? Vá, ég man bara ekkert eftir þessum leik,“ sagði Gugga hlæjandi og bætti við:
„Ég get ekki ímyndað mér að það sé mikið af sömu leikmönnum í tékkneska liðinu ennþá, nema þær séu gamlar eins og ég.“
„Þetta lið lítur rosa vel út og er með stóra og sterka framherja sem við þurfum að passa okkur á. Þær eru ótrúlega vel spilandi lið sem þorir að spila fótbolta. Þær eru ekki að fara að pakka í vörn á móti okkur.“
Nánar er rætt við Guggu í spilaranum hér að ofan en þar kemur hún meðal annars inn á öðruvísi pressu sem er á íslenska liðinu í þessum leik frá þeim síðasta.
Athugasemdir