„Maður er orðlítill. Ég veit ekki hvað maður á að segja," sagði Arnór Ingvi Traustason eftir 1-1 jafnteflið gegn Katar í vináttuleik í kvöld.
Ísland leiddi 1-0 í hálfleik þrátt fyrir að hafa átt í erfiðleikum í fyrri hálfleiknum. „Þetta var með því lélegra sem ég hef séð og ég hef tekið þátt í. Við vorum stálheppnir."
„Við vorum alltof opnir í fyrri hálfleik. Við vorum galopnir á miðjunni og þetta var mjög lélegt."
Ísland prófaði að spila með fimm manna vörn í síðari hálfleiknum.
„Í seinni hálfleik náðum við að leggjast til baka og þeir sköpuðu sér ekki mikið þá og komust ekki mikið í gegnum okkur. Við vorum að prófa þetta og tíminn í það er akkúrat núna."

Lestu um leikinn: Katar 1 - 1 Ísland
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir