Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 19. nóvember 2017 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baulað á Griezmann - „Enn hluti af fjölskyldunni"
Markaþurrð hjá Griezmann.
Markaþurrð hjá Griezmann.
Mynd: Getty Images
Það var baulað á framherjann Antoine Griezmann þegar nágrannaslagur Atletico Madrid og Real Madrid fór fram í gær.

Griezmann var tekinn af velli í leiknum sem endaði með markalausu jafntefli, en á meðan Griezmann gekk af velli tóku stuðningsmenn á Wanda Metropolitano upp á því að baula á hann.

Griezmann hefur ekki skorað mark síðan 27. september og stuðningsmenn eru orðnir pirraðir. Það að honum dreymi um að spila með Mbappe og Neymar hjálpar honum væntanlega ekki.

Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, stökk Griezmann til varnar eftir að það var baulað á hann í gærkvöldi.

„Griezmann er enn hluti af fjölskyldunni og ég ver fjölskyldu mína fram í dauðann. Allir leikmenn þurfa að standa sig, þú getur ekki unnið með nokkra leikmenn," sagði Simeone.
Athugasemdir
banner
banner
banner