Hörður Björgvin Magnússon ræddi árangur íslenska landsliðsins í samtali við heimasíðu FIFA í vikunni sem var að líða.
Hörður eignaði sér stöðu vinstri bakvarðar í síðustu undankeppni og stóð sig virkilega vel er Ísland tryggði sig inn á HM í Rússlandi.
En hvers vegna hefur Ísland náð svona góðum árangri?
„Að við séum að fara á HM kemur okkur ekki á óvart, það hefur alltaf verið markmið okkar," sagði Hörður.

„Við erum ekki með Neymar eða Philippe Coutinho í liðinu okkar, bara leikmenn sem vinna saman sem ein heild. Þess vegna unnum við England á EM og við stefnum lengra."
Athugasemdir