Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. nóvember 2017 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
Holland: Albert Guðmunds óstöðvandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jong PSV 2 - 0 Jong Utrecht
1-0 Sam Lammers ('26)
2-0 Albert Guðmundsson ('41)

Albert Guðmundsson er lykilmaður í unglingaliði PSV Eindhoven og skoraði enn eina ferðina er liðið mætti unglingaliði Utrecht í kvöld.

Sam Lammers gerði fyrra mark PSV og tvöfaldaði Albert forystuna fyrir leikhlé með sínu átjánda marki í átján síðustu leikjum liðsins.

Jong PSV er í efri hluta hollensku B-deildarinnar með 18 stig eftir 13 umferðir.

Albert er kemur stundum inn af bekknum fyrir aðallið PSV, sem er með átta stiga forystu á toppi hollensku efstu deildarinnar.

Viktor Einarsson kom þá inn af bekknum í unglingaliði AZ Alkmaar sem hafði betur gegn unglingaliði Ajax, 4-2, eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.




Athugasemdir
banner