Köln hafði betur gegn Arsenal í Evrópudeildinni fyrr í kvöld. Arsenal var búið að vinna riðilinn fyrir viðureignina og hvíldi lykilmenn.
Eina mark leiksins kom í síðari hálfleik þegar Sehrou Guirassy skoraði úr afar umdeildri vítaspyrnu.
Eina mark leiksins kom í síðari hálfleik þegar Sehrou Guirassy skoraði úr afar umdeildri vítaspyrnu.
Fjandskapur Arsenal og Tottenham, sem eru bæði staðsett í norðurhluta Lundúna, er heimsþekktur.
Á tímapunkti í leiknum tóku stuðningsmannahópar beggja liða að syngja níðsöng um Tottenham, eða „Tottenham er skítur."
Það vakti mikla kátínu hjá stuðningsmönnum Arsenal eins og er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir