Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. nóvember 2017 13:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sara Björk getur náð fram hefndum fyrir Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið var í 8-liða úrslit Meistaradeildar kvenna núna í hádeginu.

Stjarnan datt út í 16-liða úrslitum gegn tékkneska liðinu Slavia Prag, en árangur Stjörnukvenna var frábær.

Stjörnubanarnir í Slavia Prag fá mjög erfitt verkefni í 8-liða úrslitunum, verkefni gegn Þýskalandsmeisturum Wolfsburg. Með Wolfsburg leikur landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir.

Sara fær því tækifæri til að ná fram hefndum fyrir Stjörnuna.

Á sama tíma var dregið í undanúrslitin. Ef Wolfsburg kemst áfram úr einvíginu gegn Slavia Prag verður næsti mótherjinn annað hvort enkska liðið Chelsea eða franska liðið Montpellier. María Þórisdóttir er á mála hjá Lundúnaliði Chelsea.

Hér að neðan eru viðureignirnar.

8-liða úrslitin:
Montpellier - Chelsea
Wolfsburg - Slavia Prag
Manchester City - Linköping
Lyon - Barcelona

Undanúrslitin:
Montpellier/​Chelsea –-Wolfsburg/​Slavia Prag
Manchester City/​Linköping - Lyon/​Barcelona



Athugasemdir
banner
banner
banner