Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. nóvember 2017 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Ramos með grímu á æfingu Real Madrid
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn og fyrirliðinn Sergio Ramos æfði með liðsfélögum sínum í Real Madrid í dag.

Ramos æfði einn í gær eftir að hafa nebrotnað í 0-0 jafnteflinu gegn Atletico Madrid um síðustu helgi.

Ramos fékk að æfa með liðsfélögum sínum í dag, en hann æfði með grímu til varnar nefinu.

Ramos er klár í slaginn og getur spilað gegn Malaga í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Gareth Bale og Mateo Kovacic eru líka tilbúnir í leikinn á morgun eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, gæti þó tekið ákvörðun um að hvíla þá þrjá þar sem Madrídingar ættu að geta klárað Malaga án þeirra. Malaga hefur tapað níu af fyrstu 12 leikjum sínum í spænsku úrvalsdeildinni á þessu leiktímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner