Hannover 1 - 1 Stuttgart
0-1 Takuma Asano ('24 )
1-1 Niclas Fullkrug ('76 , víti)
0-1 Takuma Asano ('24 )
1-1 Niclas Fullkrug ('76 , víti)
Hannover og Stuttgart mættust í fyrsta leik 13. umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Gestirnir í Stuttgart komust yfir á 24. mínútu en þá skoraði Takuma Asano.
Þannig var staðan er liðin gengu til hálfleiks.
Þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka fengu heimamenn vítaspyrnu. Úr henni skoraði Niclas Fullkrug og jafnaði leikinn og urðu það lokatölur.
Liðin eru bæði um miðja deild. Hannover situr í 8. sæti deildarinnar en Stuttgart er tveimur sætum neðar.
Athugasemdir