Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 24. nóvember 2017 22:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Carrick var frá vegna óreglulegs hjartaslátts
Carrick hefur verið frá síðan í september
Carrick hefur verið frá síðan í september
Mynd: Getty Images
Michael Carrick, fyrirliði Manchester United hefur gefið það út að hann hafi verið frá vegna óreglulegs hjartaslátts.

Miðjumaðurinn reyndi hefur farið í meðferð vegna vandamálsins og vonast hann til þess að snúa aftur á völlinn á næstunni.

Carrick fann að eitthvað var að í deildabikarleiknum gegn Burton í september og leiddu rannsóknir í ljós að hann væri með óreglulegan hjartslátt.

Englendingurinn segist nú vera heill, og er hann snúinn aftur á æfingar og er einbeittur á að snúa aftur á völlinn.

Carrick sendi frá sér yfirlýsingu á Twitter en hana má sjá hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner