Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 24. nóvember 2017 21:58
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Spánn: Iago Aspas tryggði Celta Vigo sigur
Aspas skoraði eina mark leiksins í kvöld
Aspas skoraði eina mark leiksins í kvöld
Mynd: Getty Images
Celta 1 - 0 Leganes
1-0 Iago Aspas ('27 , víti)

Celta Vigo fékk Leganes í heimsókn í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en þetta var fyrsti leikurinn í 13. umferð deildarinnar.

Það dró til tíðinda um miðbik fyrri hálfleiks þegar gestirnir fengu dæmda á sig vítaspyrnu.

Úr spyrnunni skoraði markahrókurinn Iago Aspas.

Mark Aspas reyndist eina mark leiksins og komst Celta Vigo með sigrinum uppfyrir Leganes í töflunni. Liðin eru jöfn á stigum og sitja í 8. og 9. sæti.
Athugasemdir
banner
banner