Hans Mathiesen til Fram (Staðfest)
Úrvalsdeildarlið Fram hefur gengið frá samningum við danskan leikmann sem mun leika með þeim á komandi tímabili. Leikmaðurinn sem um ræðir heitir Hans Mathiesen og kemur til liðsins í lok apríl. Búið er að ganga frá samkomulagi bæði við leikmanninn og félagið sem hann leikur með en það er AC Horsense sem er í dönsku 1. deildinni.
Mathiesen hefur leikið með AC Horsense í dönsku 1. deildinni, en liðið er langefst í deildinni. Hans er 23 ára miðjuleikmaður. Hann er uppalinn hjá Bröndby en hefur leikið með AC Horsense síðastliðið ár. Auk þessa hefur hann leikið með yngri landsliðum Danmerkur. Hann er 166 sm á hæð. Hans er ungur en mjög sterkur leikmaður samkvæmt heimasíðu Fram.
Samkvæmt heimildum Fótbolti.net eru Framarar í viðræðum við annan danskan leikmann og vonast er til að samningar náist við hann sem fyrst.
Mathiesen er annar erlendi leikmaðurinn sem fram fær til sín fyrir sumarið en áður hafði írski varnarmaðurinn Ross McLynn gert samning við félagið.
Upplýsingar af heimasíðu Fram


