Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 10. desember 2017 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Ronaldinho skoraði fyrir aftan miðju
Mynd: Getty Images
Hinn 37 ára gamli Ronaldinho verður ávalt talinn til hæfileikaríkustu knattspyrnumanna sögunnar.

Hann gerði garðinn frægan með Barcelona og brasilíska landsliðinu og lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum, 35 ára gamall.

Ronaldinho fékk að velja leikmenn með sér í lið í góðgerðarleik í Brasilíu og voru hans menn einu marki undir þegar hann sá markvörð andstæðinganna vera við vítateigslínuna.

Ronaldinho var ekki lengi að hugsa heldur horfði hann upp og lét strax vaða á markið.

Markvörðurinn átti ekki mikinn séns í boltann og er hægt að sjá þetta glæsilega mark hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner