Hjálmar Örn Jóhannsson, grínisti og stuðningsmaður Tottenham, er sáttur við að sínir menn mæti Juventus í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Tottenham dróst gegn ítölsku meisturunum þegar dregið var í morgun.
Tottenham dróst gegn ítölsku meisturunum þegar dregið var í morgun.
„Ég er mjög sáttur við dráttinn. Að fá Juve er akkúrat það sem menn vilja þegar mætt er á stóra sviðið," sagði Hjálmar við Fótbolta.net í dag.
„það er enginn sem mætir á jólahlaðborð og vill bara drekka sósuna menn vilja fá sér kjöt með nema náttúrulega að þú sért vegan."
Tottenham endaði fyrir ofan Real Madrid í riðlakeppninni og Hjálmar er ekki smeykur fyrir 16-liða úrslitin.
„Mín spá er 3-1 fyrir og Tottenham þannig búinir að vinna bæði liðin sem voru í úrslitum í fyrra."
Leikirnir í 16-liða úrslitum
Juventus - Tottenham
Basel - Manchester City
Porto - Liverpool
Sevilla - Manchester United
Real Madrid - PSG
Shakhtar Donetsk - Roma
Chelsea - Barcelona
Bayern Munchen - Besiktas
Athugasemdir