þri 12. desember 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Stöger stýrir Dortmund í fyrsta sinn
Mynd: Getty Images
Peter Stöger tók við Borrusia Dortmund um helgina, eftir að Peter Bosz var rekinn.

Bosz var látinn fara eftir skelfilega óvænt tap gegn Werder Bremen á Westfalenstadion.

Stöger er fyrrverandi þjálfari Köln og var rekinn þaðan fyrir skömmu eftir skelfilegt upphaf á tímabilinu þar sem félagið fékk aðeins 3 stig í 14 umferðum.

Dortmund er óvænt í 8. sæti eftir hræðilegan nóvember mánuð og vonast til að geta byrjað að rétta úr kútnum er Mainz kíkir í heimsókn.

Wolfsburg mætir Red Bull Leipzig í fyrsta leik dagsins. Freiburg og Borussia Mönchengladbach eiga svo áhugaverðan leik, þar sem fallbaráttulið Freiburg er búið að fá sjö stig úr síðustu þremur leikjum. Þá er einnig áhugaverð viðureign á dagskrá á milli Hamburger og Frankfurt.

Leikir dagsins:
17:30 Wolfsburg - RB Leipzig
19:30 Freiburg - B. M'Gladbach
19:30 Hamburger - Frankfurt
19:30 Mainz - Dortmund
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner
banner