Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. desember 2017 17:00
Magnús Már Einarsson
Real Madrid reynir að vinna HM félagsliða annað árið í röð
Real Madrid vann Meistaradeildina annað árið í röð í vor.
Real Madrid vann Meistaradeildina annað árið í röð í vor.
Mynd: Getty Images
Real Madrid mun næstu daga reyna að skrá sig í sögubækurnar með því að vinna HM félagsliða annað árið í röð.

Real Madrid vann HM félagsliða í fyrra og ef liðið vinnur aftur í ár verður það fyrsta liðið til að vinna keppnina tvö ár í röð.

HM félagsliða fer fram í Abu Dhabi í Sameinuðu Arabísku Furstasdæmunum.

Á morgun mætir Real Madrid heimamönnum í Al Jazira.

Sigurvegarinn úr þeim leik mætir Gremio frá Brasilíu eða Pachuca frá Mexíkó í úrslitaleik á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner