Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. desember 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stefnt á viðræður við Robben og Ribery í vor
Ribery og Robben fagna hér marki saman.
Ribery og Robben fagna hér marki saman.
Mynd: Getty Images
Bayern München ætlar að ræða við kantmennina reynslumiklu, Franck Ribery og Arjen Robben áður en tímablið klárast. Báðir eru þeir samningslausir eftir tímablið.

Báðir hafa þeir verið lengi í Bæjaralandi og planið hjá félaginu er að halda þeim eitthvað áfram.

Robben er 33 ára og Ribery er orðinn 34 ára.

„Franck og Arjen eiga báðir mikla sögu hér og við vitum hvað við fáum frá þeim. Þeir eru báðir mjög mikilvægir fyrir okkur," sagði Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern, við TZ.

„Það er mikilvægt að ákveða hvort þeir ætli að halda áfram hér. Það verður ekki ákveðið á næstunni en það verða alvarlegar viðræður við þá félaga, líklega næsta vor."



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner