Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 12. desember 2017 19:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: RB Leipzig opnaði dyrnar fyrir Bayern
Leipzig gerði jafntefli.
Leipzig gerði jafntefli.
Mynd: Getty Images
Wolfsburg 1 - 1 RB Leipzig
1-0 Paul Verhaegh ('15 , víti)
1-1 Marcel Halstenberg ('52 )

RB Leipzig hefur opnað dyrnar fyrir stórveldinu Bayern München að auka forskot sitt á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar. Leipzig gerði í kvöld jafntefli gegn Wolfsburg.

Wolfsburg komst yfir í leiknum með marki úr vítaspyrnu á 15. mínútu en Leipzig tókst að jafna í upphafi seinni hálfleiks.

Leipzig stjórnaði ferðinni og hélt boltanum vel en tókst ekki að skora annað mark og jafntefli því staðreynd.

RB Leipzig er í öðru sæti deildarinnar, nú sjö stigum á eftir Bayern sem getur aukið forskot sitt í 10 stig með sigri annað kvöld. Wolfsburg er í 11. sæti með 19 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner