Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. desember 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kroos valdi Scholes fram yfir Gerrard og Lampard
Stuðningsmenn United kalla eftir því að Kroos verði keyptur
Mynd: Getty Images
Toni Kroos, miðjumaður Real Madrid, svaraði spurningum fylgjenda sinna á Twitter í gærkvöldi.

Ein spurningin sem Kroos fékk í gærkvöldi hljóðaði svo: „Þar sem þú ert miðjumaður í hæsta gæðaflokki, hver var bestur af Gerrard, Lampard og Scholes?"

Svar Kroos var einfalt.

„Paul Scholes," sagði hann.

Eftir þetta svar létu stuðningsmenn Manchester United sjá sig á Twitter. Kallað var eftir því að Kroos, sem er einn besti miðjumaður heims ef ekki sá besti, yrði keyptur til United ekki seinna en strax.

Kroos var nálægt því að ganga í raðir Man Utd fyrir nokkrum árum eftir að David Moyes tók við liðinu. Hann ákvað þó frekar að fara til Madrídar og semja við Real Madrid.












Athugasemdir
banner
banner