Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 12. desember 2017 22:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kom af velli þar sem hann var hættur að sjá boltann
Hogg í leiknum í kvöld.
Hogg í leiknum í kvöld.
Mynd: Getty Images
Jonathan Hogg var í byrjunarliði Huddersfield gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en þurfti að koma af velli í hálfleik.

Ástæðan fyrir því að Hogg þurfti að fara af velli í hálfleik er sú að hann var með mjög slæmt mígreni.

Í umfjöllun blaðamanns BBC segir að mígreni Hogg hafi orðið svo slæmt að hann var hættur að sjá boltann.

Staðan þegar Hogg fór af velli var 2-0 fyrir Chelsea en leikurinn endaði 3-1 fyrir Englandsmeistaranna.

Chelsea er komið aftur á sigurbraut eftir tap gegn West Ham um síðustu helgi. Chelsea er í þriðja sæti deildarinnar og Huddersfield situr sem fastast í því tólfta.
Athugasemdir
banner
banner
banner