mið 13. desember 2017 11:00
Elvar Geir Magnússon
Hazard gaf Willian verðlaunin sín
Hazard og Willian í góðu glensi.
Hazard og Willian í góðu glensi.
Mynd: BT Sport
Eden Hazard og Willian voru stjörnur sýningarinnar þegar Chelsea vann 3-1 sigur gegn Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Willian skoraði eitt mark og lagði upp hin tvö en það var þó Hazard sem valinn var maður leiksins.

Hazard var sjálfur ekki sammála valinu og lét Willian fá verðlaunin í staðinn í viðtali eftir leik.

Þeir félagar voru léttir, ljúfir og kátir í viðtalinu eftir leik en það má sjá í heild sinni hérna.




Athugasemdir
banner