Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 14. desember 2017 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía í dag - Reiðir Lazio-menn spila í bikarnum
Mynd: Getty Images
Leikur dagsins:
20:00 Lazio - Cittadella

Lazio hefur verið mikið í umræðunni þessa vikuna vegna leiks gegn Torino sem fram fór á mánudagskvöld.

Stuðningsmenn Lazio voru trylltir út í Piero Giacomelli dómara eftir að liðið tapaði fyrir Torino 3-1. Giacomelli rak Ciro Immobile af velli í leiknum og sleppti því að dæma vítaspyrnu sem Lazio kallaði eftir. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að nýta sér ekki myndbandstæknina í því tilfelli. Hjá Lazio eru ýmsar samsæriskenningar í gangi og talað um að hjá félaginu hafi verið rætt um að draga liðið úr keppni.

Í kvöld tekur Lazio sér hvíld frá öllum samsæriskenningum og spilar gegn Cittadella í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar á Ítalíu. Leikurinn fer fram í Róm og hefst á slaginu 20:00.
Athugasemdir
banner
banner