Gianluigi Buffon er ekki viss um það hvenær hann mun leggja markmannshanskana á hilluna.
Buffon er 39 ára gamall og er enn í fullu fjöri með Juventus.
HM í Rússlandi 2018 átti að vera hans kveðjustund en Ítalía komst ekki á mótið eftir að hafa tapað í umspili gegn Svíþjóð. Mikil reiði braust út í Ítalíu eftir úrslitin og Buffon og aðrir lykilmenn í landsliðinu tilkynntu það að þeir væru hættir að spila með Ítalíu.
Buffon útilokar hins vegar ekki að standa í rammanum ef Ítalía verður á meðal þáttökuþjóða á Evrópumótinu árið 2020.
„Eftir að féllum út gegn Svíþjóð, hef ég fundið fyrir svo miklum kærleik," sagði Buffon á verðlaunahátíð Gazzetta Sports.

Aðspurður að því hvort hann gæti séð fyrir sér að spila á EM 2020, þá sagði hann: „Ég útiloka aldrei neitt."
Athugasemdir