Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 14. desember 2017 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Angel Gomes með sinn fyrsta samning hjá Man Utd
Mynd: Man Utd
Angel Gomes hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Manchester United.

Gomes, sem er 17 ára gamall, er sóknarþenkjandi miðjumaður og þykir einn mest spennandi leikmaður sem komið hefur í gegnum akademíu Manchester United í langan tíma. Hann kom inn á sem varamaður fyrir Wayne Rooney í fyrsta leik sínum fyrir aðallið United í síðasta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Hann var hluti af U17 landsliði Englands sem varð heimsmeistari í Indlandi í sumar.

Hann hefur verið orðaður við önnur lið eins og Dortmund og Barcelona en verður áfram hjá Manchester United og nú er næst á dagskrá að spila fleiri leiki með aðalliðinu.

„Manchester United hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu," sagði hann eftir að hafa skrifað undir samninginn.

Sjá einnig:
Leikmaður Man Utd gerði stuðningsmenn reiða
Athugasemdir
banner
banner