mið 13. desember 2017 23:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfa hrósað - Hefur bætt sig mikið hjá Stóra Sam
Mynd: Getty Images
Gylfi Sigurðsson hefur bætt sig mikið frá því Sam Allardyce tók við stjórnartaumunum hjá Everton. Eftir erfiða byrjun virðist hann vera að finna taktinn hjá félaginu.

Hann átti góðan leik í kvöld þegar Everton lagði Newcastle að velli með einu marki gegn engu. Var honum hrósað sérstaklega fyrir vinnusemi sína.

Hjá Liverpool Echo er hann valinn maður leiksins með 8 í einkunn og hjá Sky Sports fær hann 7.

Á samfélagsmiðlinum Twitter hrósa svo margir stuðningsmenn Gylfa og er þar bent á að hann hafi bætt sig mikið frá því Allardyce tók við.

Hér að neðan má sjá nokkur tíst frá því í kvöld.















Athugasemdir
banner
banner
banner