Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 14. desember 2017 22:30
Ingólfur Stefánsson
Þrír leikmenn framlengja samning sinn hjá Everton
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin og varnarmennirnir Jonjoe Kenny og Mason Holgate hafa allir skrifað undir nýjan langtímasamning hjá Everton.

Calvert-Lewin sem er 20 ára gamall hefur skorað 6 mörk í 28 leikjum á tímabilinu. Hann skrifar undir samning til ársins 2023.

Kenny sem er einnig 20 ára skrifar undir samning til ársins 2022 líkt og Holgate. Kenny spilaði sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í október á þessu ári og hefur heillað síðan þá.

„Ég er handviss um að þessir leikmenn muni spila stórt hlutverk hjá Everton í langan tíma. Þeir endurspegla allt það góða starf sem Everton vinnur með ungum leikmönnum," segir Sam Allardyce stjóri liðsins.
Athugasemdir
banner
banner