Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 14. desember 2017 21:43
Ingólfur Stefánsson
Viðar Örn tryggði Maccabi bikarmeistaratitilinn
Skoraði sigurmark á 83. mínútu
Mynd: .
Maccabi Tel Aviv eru Toto bikarmeistarar Ísrael árið 2017 eftir sigur á Hapoel Beersheva í kvöld.

Maccabi sigraði leikinn 1-0 en sigurmarkið kom á 83. mínútu leiksins. Viðar Örn Kjartansson skoraði sigurmarkið í leiknum.

Viðar fékk góða fyrirgjöf inn á teiginn og skallaði boltann örugglega niður í markhornið.

Viðar er á sínu öðru ári hjá Maccabi Tel Aviv og hefur raðað inn mörkum. Hann skoraði einnig sigurmark í leik liðanna þegar þau mættust í ísraelsku deildinni fyrr á árinu.


🏆🏆🏆🏆🏆...

A post shared by vidarkjartans (@vidarkjartansson) on


Athugasemdir
banner
banner
banner