Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 15. desember 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
Wenger: Höfum aldrei heyrt frá Man Utd vegna Özil
Mesut Özil.
Mesut Özil.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Manchester United hafi ekki gert tilraun til að krækja í Mesut Özil.

Þjóðverjinn verður samningslaus næsta sumar en hann hefur talsvert verið orðaður við Manchester United undanfarnar vikur.

„Við höfum aldrei heyrt í Manchester United svo ég veit ekki hvernig þetta kom upp eða hver byrjaði með þetta. Þetta er eitthvað sem er búið til," sagði Wenger.

Wenger segir að Özil fari ekki fet í janúar.

„Ég veit ekki hversu nálægt við erum því að ganga frá nýjum samningi en hann verður pottþétt hér út tímabilið. Framhaldið er opið eftir það," sagði Wenger.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner