Þorgrímur Þráinsson var með sex rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar á Englandi fyrir viku síðan.
Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á RÚV, tók sér frí frá jólaundirbúningi til að spá í leiki helgarinnar að þessu sinni.
Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á RÚV, tók sér frí frá jólaundirbúningi til að spá í leiki helgarinnar að þessu sinni.
Leicester 3 - 1 CrystalPalace (12:30 á morgun)
Tvö frekar heit lið að mætast en hér spái ég því að fyrsta tap Palace frá 5. nóvember komi. Hodgson er búinn að rífa Palace upp af botninum en Leicester hefur verið sjóðandi síðustu vikur og spilað skemmtilegan bolta. Mahrez er að detta í meistaraársformið sitt og Leicester blandar sér í Evrópubaráttu með sigri.
Arsenal 4 - 0 Newcastle (15:00 á morgun)
Það er eitthvað mikið að hjáNewcastle þessa dagana. Stuðningsmenn vilja sjá #AshleyOut og bíða eftir því að kauði selji loksins klúbbinn. Þangað til að einhver með metnað kaupir Newcastle heldur liðið áfram að tapa og Arsenal vinnur kærkominn sigur eftir ströggl síðustu vikna.
Brighton 0 - 1 Burnley (15:00 á morgun)
Nálgast jólin? Já. Er himininn blár? Já. Vinnur Burnely 1-0 og Jói Berg leggur markið upp? Já. Beint í mark.
Chelsea 4 - 1 Southampton (15:00 á morgun)
Einhvern veginn eru leikirnir gegn Southampton yfirleitt frekar þægilegir fyrir mína menn. Hér setur Hazard bókað tvö mörk og Pedro læðir jafnvel inn einu. Fjórða markið kemur frá varnarmanni.
Stoke 1 - 0 West Ham (15:00 á morgun)
Gífurlega mikilvægur leikur í fallbaráttunni. Hér væri ég til í að leggja aleiguna undir að einn af viðkunnalegustu leikmönnum deildarinnar komi inn á og skori sigurmarkið seint í leiknum með skallamarki. Og þá er ég að sjálfsögðu að tala um Peter Crouch.
Watford 2 - 2 Huddersfield (15:00 á morgun)
Eina jafntefli umferðarinnar. Bæði lið eru í frekar þægilegum málum þó svo að Huddersfield þurfi meira á þremur punktum að halda. Þjóðverjinn David Wagner, fyrrverandi landsliðsmaður Bandaríkjanna, á skilið að vera aðlaður fyrir það sem hann hefur gert með þennan hóp hjá Huddersfield.
Manchester City 2 - 1 Tottenham (17:30 á morgun)
Hér legg ég til að leikmenn Tottenham myndi heiðursgöng fyrir leik og hylli meistara Manchester City eins og tíðkast þegar ljóst er að lið er orðið meistari. Þetta verður hörkuleikur en það er ekki hægt að stoppa City þessa dagana og heimamenn vinna 2-1. Silva allavega með eitt og Son skorar fyrir Tottenham.
WBA 0 - 3 Manchester United (14:15 á sunnudag)
Lukaku setur tvö í rosalega þægilegum United sigri. Johnny Evans fær beint rautt fyrir eina lauflétta tveggja fóta.
Bournemouth 0 - 5 Liverpool (16:30 á sunnudag)
Hérna skorar Mohamed Salah loksins fyrstu þrennuna sína fyrir Liverpool og verður því með 16 deildarmörk eftir leikinn. Sóknarlína Liverpool verður í stuði og Coutinho bætir við einu og Uxinn kemur inn á sem varamaður og setur eitt í lokin.
Everton 3 - 0 Swansea (20:00 á mánudag)
Everton heldur áfram að hamra járnið á meðan það er heitt. Ljúfa lífið undir stjórn Allardyce eitthvað inn í jólatörnina og það verður gaman á Goodison á mánudagskvöldið. Everton fær tvö víti í leiknum og Rooney skorar úr þeim báðum. Gylfi leggur fyrsta mark leiksins upp.
Fyrri spámenn:
Gaupi (7 réttir)
Gunnar Jarl Jónsson (6 réttir)
Haukur Páll Sigurðsson (6 réttir)
Lillý Rut Hlynsdóttir (6 réttir)
Siggi Dúlla (6 réttir)
Steindi Jr (6 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (6 réttir)
Gummi Ben (5 réttir)
Logi Bergmann (5 réttir)
Ólafur Ingi Skúlason (5 réttir)
Viðar Skjóldal - Enski (5 réttir)
Birkir Már Sævarsson (4 réttir)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (4 réttir)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (3 réttir)
Ólafur Darri Ólafsson (3 réttir)
Jón Ragnar Jónsson (1 réttur)
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 28 | 20 | 4 | 4 | 70 | 24 | +46 | 64 |
2 | Liverpool | 28 | 19 | 7 | 2 | 65 | 26 | +39 | 64 |
3 | Man City | 28 | 19 | 6 | 3 | 63 | 28 | +35 | 63 |
4 | Aston Villa | 29 | 17 | 5 | 7 | 60 | 42 | +18 | 56 |
5 | Tottenham | 28 | 16 | 5 | 7 | 59 | 42 | +17 | 53 |
6 | Man Utd | 28 | 15 | 2 | 11 | 39 | 39 | 0 | 47 |
7 | West Ham | 29 | 12 | 8 | 9 | 46 | 50 | -4 | 44 |
8 | Brighton | 28 | 11 | 9 | 8 | 50 | 44 | +6 | 42 |
9 | Wolves | 28 | 12 | 5 | 11 | 42 | 44 | -2 | 41 |
10 | Newcastle | 28 | 12 | 4 | 12 | 59 | 48 | +11 | 40 |
11 | Chelsea | 27 | 11 | 6 | 10 | 47 | 45 | +2 | 39 |
12 | Fulham | 29 | 11 | 5 | 13 | 43 | 44 | -1 | 38 |
13 | Bournemouth | 28 | 9 | 8 | 11 | 41 | 52 | -11 | 35 |
14 | Crystal Palace | 28 | 7 | 8 | 13 | 33 | 48 | -15 | 29 |
15 | Brentford | 29 | 7 | 5 | 17 | 41 | 54 | -13 | 26 |
16 | Everton | 28 | 8 | 7 | 13 | 29 | 39 | -10 | 25 |
17 | Luton | 29 | 5 | 7 | 17 | 42 | 60 | -18 | 22 |
18 | Nott. Forest | 29 | 6 | 7 | 16 | 35 | 51 | -16 | 21 |
19 | Burnley | 29 | 4 | 5 | 20 | 29 | 63 | -34 | 17 |
20 | Sheffield Utd | 28 | 3 | 5 | 20 | 24 | 74 | -50 | 14 |
Athugasemdir