Rafa Benitez var að sjálfsögðu svekktur eftir 1-0 tap gegn Arsenal í dag, sérstaklega í ljósi þess að lærisveinar hans í Newcastle hafi fengið færi til að fá eitthvað úr leiknum.
„Við fengum færi til að gera jafntefli, þetta er synd," sagði Benitez. „En þetta hefur líka verið svona í tveimur, þremur síðustu leikjum okkar. Við erum að læra."
„Við fengum færi til að gera jafntefli, þetta er synd," sagði Benitez. „En þetta hefur líka verið svona í tveimur, þremur síðustu leikjum okkar. Við erum að læra."
Newcastle hefur ekki verið að fá góð úrslit og er nú í fallsæti.
„Við vissum að þetta gæti orðið erfitt. Við erum búnir að tapa tveimur eða þremur leikjum sem við hefðum getað unnið. Við verðum að vera samkeppnishæfir eins og í dag og halda áfram."
„Við erum með ungt lið, ef við vinnum ekki fótboltaleiki þá töpum við sjálfstrausti."
„Við verðum að halda áfram og reyna að ná góðum úrslitum. Svo í janúar, þá væri fínt að fá leikmenn."
Athugasemdir