„Þetta er mjög gott stig til að klára erfiða viku," sagði Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, eftir markalaust jafntefli gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
„Þetta hefur verið erfið vika, en að halda þrisvar hreinu og að fá sjö stig úr þremur leikjum er mjög ánægjulegt."
„Þetta hefur verið erfið vika, en að halda þrisvar hreinu og að fá sjö stig úr þremur leikjum er mjög ánægjulegt."
„Þetta er annað stig á töfluna."
„Brighton byrjaði vel, þeir ætluðu sér eitthvað í þessum leik, og það gerðist margt í þessum leik. Það var vítaspyrna, og svo var markvarsla frá Chris Wood. Við urðum að vinna fyrir þessum úrslitum, við gerðum það."
Jóhann Berg Guðmundsson spilaði allan leikinn fyrir Burnley í dag, rétt eins og svo oft áður.
Burnley er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir