Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 17. desember 2017 11:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Telegraph 
Sterling varð fyrir kynþáttafordómum á æfingasvæði Man City
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling varð fyrir leiðinlegri reynslu nokkrum klukkustundum fyrir leikinn gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann varð fyrir kynþáttaníð.

Leikmenn City mættu á æfingasvæði félagsins fyrir leikinn og þar beið maður eftir Sterling. Kallaði hann ljót og móðgandi orð að enska landsliðsmanninum.

Þetta er haft eftir heimildum Telegraph, en þegar Sterling keyrði í hlað beið maðurinn þar eftir honum.

Sterling fór út úr bílnum og ætlaði að ræða við manninn en þá fór maðurinn að sparka ítrekað í fætur Sterling.

City á enn eftir að tjá sig um atvikið og ekki er ljóst hvort málið hafi verið tilkynnt til lögreglu eða ekki. Þetta hafði ekki mikil áhrif á Sterling sem skoraði tvö í 4-1 sigri á Tottenham í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner