Cristiano Ronaldo ætlar sér að enda feril sinn hjá Real Madrid, þ.e.a.s. ef hann fær möguleika til þess.
Ronaldo, sem er 32 ára gamall, hjálpaði Madrídingum að vinna HM félagsliða í gær. Ronaldo skoraði sigurmarkið úr aukaspyrnu í upphafi seinni hálfleiksins.
Real Madrid varð fyrsta liðið til að vinna mótið tvö ár í röð með sigrinum í gær.

Ronaldo er samningsbundinn Real Madrid til 2021 og hann langar að enda ferilinn í Madríd.
„Ég er til í það, en það veltur ekki allt á mér," sagði Ronaldo um hvort hann myndi enda ferilinn hjá Evrópumeisturunum.
„Ég er ekki að stjórna félaginu. Mitt starf fer fram inn á fótboltavellinum og ég er að standa mig vel."
Ronaldo var á dögunum valinn besti leikmaður heims í fimmta sinn.
Athugasemdir