Leikmenn Manchester City voru hressir eftir 4-1 sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær. Eftir leikinn sungu leikmenn City-liðsins um nágrannana í Manchester United.
„Legðu rútunni, legðu rútunni Man Utd," var sungið.
Þetta er skot í áttina að Jose Mourinho, stjóra Manchester United, sem hefur oft verið sakaður um að „leggja rútunni".
„Legðu rútunni, legðu rútunni Man Utd," var sungið.
Þetta er skot í áttina að Jose Mourinho, stjóra Manchester United, sem hefur oft verið sakaður um að „leggja rútunni".
Mourinho er líklega ekki sáttur með þetta en það varð allt vitlaust eftir leik United og City um síðustu helgi. Leikmenn City spiluðu of háværa tónlist að mati Mourinho eftir leikinn sem Man City vann 2-1 og það varð allt vitlaust. Mourinho fékk m.a. mjólk yfir sig.
Hér að neðan má sjá myndband úr klefa City eftir leikinn í gær en það var Forfana Diacko, vinur Benjamin Mendy, sem deildi myndbandinu á samfélagsmiðlum.
NOOOOOO I LOVE THIS CLUB!!!
— Freddie (@Beardamendi) December 16, 2017
PARK THE BUS PARK THE BUS MAN UNITED pic.twitter.com/e4xFkKuLtk
Athugasemdir