Elazigspor 0 - 1 BB Erzurumspor
0-1 Erhan Çelenk ('18)
0-1 Erhan Çelenk ('18)
Landsliðsmaðurinn Theodór Elmar Bjarnason lék allan leikinn þegar Elazigspor mætti BB Erzurumspor í tyrknesku B-deildinni í dag.
Það var aðeins eitt mark skorað og það gerði Erhan Çelenk fyrir gestina í BB Erzurumspor á 18. mínútu.
Elazigspor var meira með boltann en náði ekki að gera neitt úr því. Elmar og félagar urðu manni færri á 82. mínútu er Alpaslan Ozturk fékk rautt spjald, það hjálpaði ekki.
Gengi Elmars og félaga í tyrknesku B-deildinni hefur verið vægast sagt lélegt að undanförnu. Eftir að hafa verið í umspilssæti framan af er liðið nú í 11. sæti. Liðið vann síðast deildarleik í byrjun nóvember.
Athugasemdir