Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 17. desember 2017 15:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Mendy kyssti De Bruyne í miðju viðtali
Mynd: Getty Images
Benjamin Mendy hefur ekki náð að sýna sig og sanna í ensku úrvalsdeildinni vegna meiðsla, en hann hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtilegheit utan vallar.

Hann er mjög virkur á Twitter og öllum samfélagsmiðlum.

Hann sér til að mynda greinilega um Twitter aðgang sinn sjálfur og er ekki með menn í því fyrir sig eins og svo margir aðrir fótboltamenn.

Í gær vann Manchester City 4-1 sigur á Tottenham. Mendy spilaði ekki vegna meiðsla en var auðvitað á vellinum.

Eftir leikinn fór Kevin de Bruyne, leikmaður City, í viðtal en Mendy ákvað að trufla hann aðeins með því að kyssa hann á kinnina og leggja sig á öxlinni hans.

Mendy deildi myndbandi af þessu á Instagram og skrifað við það: „Finnið einhvern sem elskar ykkur eins og ég elska Kevin de Bruyne 😘😍❤️😂."

Myndbandið er hér að neðan.

Find someone who loves you as much as I love @kevindebruyne 😘😍❤️😂

A post shared by Benjamin Mendy (@benmendy23) on


Athugasemdir
banner
banner