Juventus er komið í annað sæti ítölsku deildarinnar eftir sannfærandi sigur gegn Bologna.
Max Allegri, þjálfari Juve, sendi Paulo Dybala sterk skilaboð þegar hann byrjaði á bekknum rétt eins og gegn Inter í síðustu umferð. Argentínumaðurinn knái fékk að spila síðasta stundarfjórðunginn.
Max Allegri, þjálfari Juve, sendi Paulo Dybala sterk skilaboð þegar hann byrjaði á bekknum rétt eins og gegn Inter í síðustu umferð. Argentínumaðurinn knái fékk að spila síðasta stundarfjórðunginn.
Sassuolo lagði Sampdoria óvænt á útivelli með marki á lokamínútunum, en Marco Politano hafði klúðrað vítaspyrnu fyrir gestina skömmu fyrr.
Fiorentina gerði markalaust jafntefli við Genoa og Crotone rétti aðeins úr kútnum gegn Chievo eftir nokkra tapleiki í röð.
Bologna 0 - 3 Juventus
0-1 Miralem Pjanic ('27)
0-2 Mario Mandzukic ('36)
0-3 Blaise Matuidi ('64)
Sampdoria 0 - 1 Sassuolo
0-1 Alessandro Matri ('90)
Fiorentina 0 - 0 Genoa
Crotone 1 - 0 Chievo
1-0 Ante Budimir ('33)
Athugasemdir