Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 17. desember 2017 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Suarez og Paulinho sáu um markaskorunina
Suarez og Paulinho afgreiddu Deportivo.
Suarez og Paulinho afgreiddu Deportivo.
Mynd: Getty Images
Barcelona 4 - 0 Deportivo La Coruna
1-0 Luis Suarez ('29)
2-0 Paulinho ('41)
3-0 Luis Suarez ('47)
4-0 Paulinho ('75)

Börsungar lentu ekki í neinum vandræðum gegn Deportivo La Coruna í lokaleik kvöldsins á Spáni.

Paco Alcacer fór meiddur af velli eftir 23 mínútur og verður frá í þrjár vikur, en sex mínútum síðar kom Luis Suarez heimamönnum yfir.

Paulinho tvöfaldaði forystuna fyrir leikhlé og bætti Suarez þriðja markinu við snemma í síðari hálfleik.

Lionel Messi brenndi af vítaspyrnu áður en Paulinho gerði fjórða og síðasta markið.

Barca er á toppi deildarinnar, með sex stiga forystu á Atletico Madrid.
Athugasemdir
banner
banner