mán 18. desember 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Guardiola skilur reiði Aguero
Sergio Aguero.
Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segist skilja reiði Sergio Aguero eftir að hann var tekinn af velli í 4-1 sigrinum á Tottenham á laugardag.

Aguero var tekinn af velli fyrir Gabriel Jesus á 56. mínútu í stöðunni 1-0 en hann henti í kjölfarið hönskunum sínum í jörðina og horfði ekki í augun á Guardiola þegar hann gekk af velli.

„Þetta er eðlilegt. Leikmenn vilja spila og ég get skilið hann," sagði Guardiola um viðbrögð Aguero.

„Hann vill spila. Hann er topp leikmaður en ég þurfti aðeins meiri orku í þessari stöðu með því að láta Gabriel spila og þess vegna tók ég þessa ákvörðun."

„Ég vil ekki særa leikmenn, trúið mér. Ég skil þá því ég var sjálfur fótboltamaður. Þeir vilja spila en ég þarf að taka þessar ákvarðanir."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner