fim 21. apríl 2005 07:43
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Ágúst Örlaugur Magnússon (ÍA)
Ágúst Örlaugur í leik gegn FH í U-23 ára liðum seinastliðið sumar.
Ágúst Örlaugur í leik gegn FH í U-23 ára liðum seinastliðið sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson
Einu sinni í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolti.net. Að þessu sinni er það Ágúst Örlaugur Magnússon sem sýnir á sér hina hliðina en hann er 18 árs miðjumaður hjá ÍA.

Ágúst Örlaugur hefur spilað með ÍA allan sinn feril í yngri flokkunum og hefur orðið Íslandsmeistari með öðrum flokk ÍA 2001 og 2002 auk þess sem hann varð Íslands- og bikarmeistari með öðrum flokk síðasta sumar. Hann var valinn besti leikmaður annars flokks í fyrra og efnilegasti leikmaður meistaraflokks ÍA.

Ágúst Örlaugur hefur leikið sjö landsleiki bæði með U19 ára og U17 ára landsliðum Íslands. Hann verður í eldlínunni ásamt félögum sínum í ÍA í dag þegar að liðið mætir Fylki í deildabikarnum.


Fullt nafn: Ágúst Örlaugur Magnússon

Gælunafn: Ölli, Stálmúsin, Tinni svo eitthver séu nefnd.

Aldur: 18

Giftur / sambúð? Nei, er í sambúð með mömmu og pabba.
Börn: Nei

Hvað eldaðir þú síðast? Svakalegan fiskrétt.

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepp og svepp

Hvernig gemsa áttu? Nokia

Uppáhaldssjónvarpsefni? Breskir gamanþættir eru mjög góðir. Eins og t.d Doc Martin sem er á Rúv

Besta bíómyndin? Dumb & Dumber, Cable guy, Zoolander, Old school, Dodge ball og James Bond myndirnar. Erfitt að gera upp á milli.

Hvaða tónlist hlustar þú á? Ég hlusta á allt.

Uppáhaldsútvarpsstöð: Bylgjan og Rás 2.. Skonrokk var líka mjög góð.

Uppáhaldsdrykkur: Appelsín

Uppáhalds vefsíða? folk.is/nomber, æðisleg síða.

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Nei.

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Vinna hann.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? KR.

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Keane, Romario, Maradonna og Klinsmann.

Erfiðasti andstæðingur? Ég sjálfur.

Ekki erfiðasti andstæðingur? Þeir eru margir slakir, Óli Þórðar er frekar lélegur þegar hann er í marki á æfingum.

Besti samherjinn? Þeir eru margir mjög góðir.

Sætasti sigurinn? Sennilega þegar við vorum Norðurlandameistarar í U-17, svo allir titlarnir með ÍA. Sætasti sigurinn á eftir að koma.

Mestu vonbrigði? Það var mjög sárt að tapa báðum úrslitaleikjunum í 3fl. Og viðbeinsbrotna stuttu seinna og missa af Evrópumótinnu U-17.

Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Man Utd.

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Keane, Gattusso, Rooney og Scholes eru góðir.

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Ætli það sé ekki Eiður.

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Theódór Elmar, Heimir Einarsson og Arnar Már Guðjónsson.

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Andrés Vilhjálmsson

Fallegasta knattspyrnukonan? Þær eru nokkar ansi sætar.

Grófasti leikmaður deildarinnar? Þetta eru mest allt bara kettlingar.

Besti íþróttafréttamaðurinn? Samúel Örn er án efa skemmtilegastur.

EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Snorri Sturluson og co á skjá einum.

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Andri Júll heldur að hann sé það allavega.

Hefurðu skorað sjálfsmark? Já

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Skemtilegt atvik já… hum.. Ég kom einu sinni inná sem varamaður í 2.fl og er ekki búinn að vera inná í nema 1 og hálfa mínútu og er rekinn útaf fyrir eitthvað sem ég er enþá ekki búinn að fatta. Þetta var kannski ekkert skemtilegt en skondið að hugsa út í þetta núna.

Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Já, en reyndar er það Football Manager núna.

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Það var eitthver æfingaleikur haustið 2002.

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Frábær síða.

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já í hvert skipti sem ég fer á netið.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Ekki neinu.

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Westlife eða Robbie Williams.

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Tapa, sem gerist reyndar mjög sjaldan.

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Fótboltavöllurinn.

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Enga stund.

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Roy Keane og Gattusso

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já ég fylgist með þessu öllu.

Hver er uppáhalds platan þín? Westlife Greatest hits.

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Nú man ég ekki maður.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Adidas copa mundial

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Ég var/er góður í öllu í skóla.

Hvað langar þig að taka þér fyrir hendur þegar knattspyrnuferlinum lýkur? Lifa lífinu.
Slapp