Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 18. desember 2017 21:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Gylfi minnti á sig gegn Swansea
Mynd: Getty Images
„Okkar maður er vaknaður í Bítlaborginni," sagði Rikki G í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 þegar Gylfi Þór Sigurðsson ákvað að smella honum í netið gegn sínum gömlu félögum í Swansea.

Leikurinn er nú í gangi en Gylfi var að koma Everton í 2-1.

Gylfi fékk boltann úti vinstra megin frá Wayne Rooney, keyrði inn og svoleiðis smellti honum í markið.

Stórkostlegt mark!

Þetta er þriðja deildarmark Gylfa frá því hann kom til Everton. Hin tvö komu gegn Southampton og Huddersfield.

Smelltu hér til að sjá markið hjá Gylfa gegn gömlu félögunum í Swansea í kvöld.



Athugasemdir
banner
banner
banner