Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 18. desember 2017 21:38
Ívan Guðjón Baldursson
Stuðningsmenn Swansea bauluðu á Gylfa
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton eru yfir gegn Swansea í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi er að spila við sitt fyrrverandi félag en hann var keyptur til Everton fyrir metfé í sumar.

Gylfi tekur hornspyrnur Everton og hafa stuðningsmenn Svananna nýtt sér það til að baula á markahæsta mann í úrvalsdeildarsögu eigins félags.

Gylfi skoraði magnað mark í síðari hálfleik og kom Everton yfir en hann fagnaði ekki markinu.

Sjá einnig:
Sjáðu markið: Gylfi minnti á sig gegn Swansea






















Athugasemdir
banner
banner
banner