Ashton segist ekki á förum frá Norwich
Dean Ashton framherji Norwich neitar því að hann ætli að fara frá liðinu falli það úr úrvalsdeildinni. Liðið er neðst í deildinni með 27 stig og á eftir að spila 4 leiki. Það eru 2 stig í WBA sem er í 17. sætinu og jafnframt öruggu sæti.
Ashton sem áður lék með Crewe nýtur lífsins í deildinni en hann hefur ekki áhuga á að fara þrátt fyrir að hann þyrfti að spila í 1. deilinni á næsta tímabili. Ashton hafði þetta að segja um hvað er framundan hjá honum:
"Ég hugsa í raun ekki um það. Ég kom nú bara hingað í janúar og ég er enn að koma mér fyrir. Svo að hugsa um að fara eitthvert annað kemst ekki fyrir hjá mér núna. Ég er bara að hugsa um að njóta lífsins og reyna að bæta mig og hlutirnir ráðast svo bara."


