Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. janúar 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Adrien Silva loksins orðinn leikmaður Leicester
Mynd: Getty Images
Leicester hefur loksins náð að kaupa miðjumanninn Adrien Silva frá Sporting Lisabon en félagaskipti hans gengu í gegn þegar félagaskiptaglugginn opnaði á miðnætti.

Leicester ætlaði að kaupa Silva á 22 milljónir punda í sumar en félagið skilaði pappírunum 14 sekúndum eftir að félagaskiptaglugginn lokaði.

Í kjölfarið reyndi Leicester að fá sérstakt leyfi hjá FIFA fyrir félagaskiptin en það gekk ekki.

Silva hefur æft með Leicester í vetur til að halda sér í formi og hann má nú loksins byrja að spila með liðinu.

„Þú verður að vera jákvæður andlega og ég hef reynt að gera það. Ég hef verið einbeittur á starf mitt og það sem ég elska að gera," sagði SIlva.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner