Axel Tuanzebe varnarmaður Manchester United gæti farið á láni frá félaginu núna í janúar mánuði.
Jose Mourinho sagði á blaðamannafundi í gær að það væri verið að skoða það hvort hann færi á lán það sem eftir er af tímabilinu.
„Tuanzebe er frábær leikmaður sem hefur ekki fengið mörg tækifæri með aðalliðinu."
„En hann er leikmaður í okkar eigu og hann verður það áfram. Það er ekki möguleiki að við förum að láta frá okkur jafn hæfileikaríkan leikmann en við erum hins vegar að hugsa um að lána hann," sagði Jose Mourinho.
Athugasemdir