Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. janúar 2018 19:53
Ingólfur Stefánsson
Heimild: Úrslit.net 
Reykjavíkurmótið: Þróttarar höfðu betur gegn Víkingum
Víðir skoraði sigurmark leiksins
Víðir skoraði sigurmark leiksins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 1-2 Þróttur R.
0-1 Daði Bergsson (29')
1-1 Halldór Smári Sigurðsson (72')
1-2 Víðir Þorvarðarson (75')

Víkingar mættu Þrótti í lokaleik dagsins á Reykjavíkurmótinu. Úr varð hörkuviðureign sem Þróttarar unnu að lokum.

Víkingar voru hættulegri í leiknum en það voru Þróttarar sem komust yfir eftir um hálftíma leik með marki frá Daða Bergssyni.

Staðan hélst óbreytt þar til á 72. mínútu þegar Halldór Smári Sigurðsson jafnaði metinn fyrir Víkinga.

Þróttarar voru fljótir að bregðast við jöfnunarmarkinu og aðeins þremur mínútum síðar skoraði Víðir Þorvarðarson sigurmark leiksins fyrir Þróttara.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner